Ásta H

Velkomin(n)

13.09.2007 15:23:17 / hylling

10. bekkjarferð

 Við 10. bekkjar fórum saman í Þórsmörk.:lol:

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 22:03:23 / hylling

hæhæ!!!!

Það var bara gaman  í  Hip hopp-krump.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 19:41:00 / hylling

9 bekkjarferð

Halló allir,:D

við í 9 bekk Hlíðaskóla fóru m saman í Þórsmörk sl. mánudag. Það var ofsalega gaman. Við byrjuðum á því að fara kl. 9 um morguninn af stað með rútu. Við þurftum að skipta um rútu þegar við vorum komin við Árbæinn því rútan var alltof lítil. Svo var stoppað í sjoppu á leiðinni. ;)

Þegar við komum svo upp í Þórsmörk fengum við okkur að borða og fórum svo í gönguferð inn í dalinn. Fimm strákar fóru aðeins í burtu frá okkur hinum og þá datt einn þeirra og braut á sér hendina. Þá var farið til baka og rútan fór með okkur öll til Hvolsvallar og þar hitti strákurinn lækni. Við hin fórum svo aftur saman í Þórsmörk. Þá tókum við dótið okkar úr rútunni og fundum okkur staði til að sofa á. Stelpurnar voru uppi í skálanum og strákarnir niðri.:(

Um klukkan hálf átta grilluðum við okkur kvöldmat. Ég var að sjálfsögðu með pylsur með mér en sumir komu með hamborgara og einn strákurinn kom með lambakjöt.:$

Svo um kl. 10 var haldin kvöldvaka, þar voru sagðar draugasögur og líka sungið. Það var mjög gaman. Við fórum svo að sofa um kl. 12.:cry:

:D:):$:haha:;)

Daginn eftir borðuðum við morgunmat og fórum svo að taka saman dótið og þrífa skálann. Svo fórum við með rútunni í bæinn aftur og vorum komin heim um kl. hálf þrjú. Þetta var bara skemmtileg ferð:) en ég var samt pínulítið ein stundum.:cry:

Heyrumst síðar! :P


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 14:13:05 / hylling

Jæja loksins!!!

Jæja jæja, núna loksins ætla ég að reyna að byrja að blogga aftur, mamma hjálpar mér að skrifa.;)

Núna er sunnudagur og við mamma erum búnar að vera að vinna aðeins í bloggsíðunni minni bæta við flottum myndum o.fl.:D

Ég vona að enginn með leiðinlegan móral kommenti inná síðuna mína.:whut:

Skólinn er náttúrulega byrjaður eins og hjá öllum öðrum, mér gengur bara vel og er ógeðslega heppin að ég byrja ekki alla morgna kl. 8:10 heldur bara þrisvar í viku. En ég þarf að vera einn dag til kl. 16:20, en slepp sem betur fer í hádeginu á föstudögum. ;) 

Bjarki bróðir og Rakel kærastan hans eru flutt til Lund í Svíþjóð svo ég er svo heppin að fá íbúðina þeirra. Við mamma erum að gera hana fína mála og svoleiðis. Svo erum við að skoða húsgögn, gardínur o.fl. í Ikea. Þetta á eftir að verða rosa fínt þegar þetta verður tilbúið en ég ætla að reyna að flytja inn fyrir jól.:D

Jæja ætla að hætta núna en vonandi skrifa ég fljótt aftur.

Sjáumst:!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 17:58:05 / hylling

Halló fólk

Halló fólk. Ég var að fá þessa síðu í dag. Núna ætla að fara að gera hana flotta og setja fullt af efni inn á hana :$ :)

» 5 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Klukkan